Myndavélafyrirtækið Polaroid markaði sér þá sérstöðu að vélarnar framkölluðu jafnóðum teknar myndir. Stafræna byltingin gerði útaf við þann markað en þrátt fyrir það hefur Polaroid ekki alveg kvatt leikhúsið og stígur á svið þessa dagana með nýtt númer. Það er fólgið í að bræða saman hágæða myndavél við Android síma. Segja má að þetta sé stafræn myndavél með innbyggðum síma en ekki á hinn veginn eins og aðrir stilla upp. Hvað gera þá Canon og Nikon? Þeir sem vilja geta svo upplifað hvernig upprunalegu Polaroid myndirnar voru með því að fara á eftirlíkingasíðuna og sækja þar til gert “framköllunarforrit”.
Myndskeið og heimasíða og eftirlíking